Trúin og lífið
Spurningar

Undirsíður

Skyld svör

  1. Hvar nálgast ég skírnarvottorð?
  2. Kostnaður við hjónavígslu
  3. Kostnaður við skírn?
  4. Bræður sem skírnarvottar
  5. Hvað kostar skírn?

Önnur svör

Svör sem birt voru í sama mánuði

  1. Skírn og trú foreldra
  2. Að skipta um skírnarvotta
  3. Hvað er dymbilvika?

Hvað kostar ferming?

Mikael Elí Stefánsson spyr:

Ég og vinur minn erum núfermdir og fengum það verkefni hjá stærðfræði kennara okkar að komast að því hvað fermingin okkar kostaði. Það sem okkur vantar að vita er hvað kostar fermingargjaldið?
Með fyrirfram þökk,
Mikael Elí og Hlynur Viðar

Árni Svanur Daníelsson svarar:

Komið þið sælir og til hamingju með þennan áfanga.

Samkvæmt gjaldskrá um greiðslur fyrir aukaverk presta þjóðkirkjunnar sem Dóms- og kirkjumálaráðuneytið setur er fermingarfræðslugjaldið 9300 krónur. Þetta gjald greiðist prestinum. Auk þess getur þurft að greiða fyrir fermingarferðalög þar sem slíkt tíðkast, fyrir fermingarkver og fyrir afnot af kyrtlum.

Þið getið lesið meira um ferminguna hér á vefnum.

Gangi ykkur vel að vinna verkefnið,
Árni Svanur Daníelsson

21/4 2009 · Skoðað 2898 sinnum


Þín ummæli

Nafn:
 
Netfang:
 
Ummæli:
 


Forsíða · Skoða svarflokka · Höfundar · Leit

Pistlar
Postilla
Almanak
Spurningar